Alda með "Founder's lunch" erindi hjá Startup SuperNova

Gísli Níls hélt í vikunni s.k. "Founder's lunch" erindi fyrir frumkvöðlahópinn sem er að hefja vegferð sína í Startup SuperNova, viðskiptahraðli KLAK – Icelandic Startups. Í erindinu kynnti hann Ölduna og deildi reynslu Öldu-teymisins af þátttöku í hraðlinum í fyrra.
Gísli Níls gaf SuperNova teymunum m.a. góð ráð um hvernig best væri að nýta þátttökuna í viðskiptahraðlinum og efla með því tengslanetið, lagði áherslu mikilvægi endurgjafar mentora KLAK sem og sam-þátttakenda í þessu ferli, ræddi um Tech-BBQ ráðstefnuna og fór að lokum yfir nokkur "Do's and Don'ts" þegar farið er af stað með nýsköpunarfyrirtæki.
Erindið fékk mjög góðar undirtektir hjá hópnum og komu margar góðar spurningar í kjölfarið, enda á reynsla Öldu-teymisins úr hraðlinum vel við þau teymi sem nú standa í sömu sporum og við í fyrra.
Við hjá Öldu erum stolt af að fá að miðla af okkar reynslu til næsta hóps frumkvöðla og þökkum KLAK kærlega fyrir boðið - en hraðlar eins og Startup SuperNova skipta sköpum fyrir íslenska nýsköpunarumhverfið.
