Til baka í fréttir

Alda nýrra tækifæra - með StartUp SuperNova

Alda nýrra tækifæra - með StartUp SuperNova

Við hjá Öldu Öryggi erum afar stolt af því að vera eitt af 10 teymum valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum StartUp SuperNova. Þetta öfluga frumkvöðlaprógram er samstarfsverkefni Nova, KLAK og fleiri lykilaðila í íslensku nýsköpunarumhverfi og hefur á undanförnum árum reynst frábær stökkpallur fyrir frumkvöðlafyrirtæki.

Markmið okkar með þátttökunni er að styrkja grundvöll Öldu Öryggis, skerpa fókus og fá aðhald og hvatningu til að hrinda hugmyndum og lausnum okkar hratt og örugglega í framkvæmd. Við munum nýta tækifærið til að efla áframhaldandi þróun og skölun okkar öflugu stafrænu lausnar á sviði öryggisstjórnunar í sjávarútvegi á skilvirkan hátt.

Við hlökkum til að læra, vaxa og kynnast öðrum frumkvöðlum og reyndum sérfræðingum á þessum öfluga vettvangi StartUp SuperNova.

https://vb.is/frettir/teymin-tiu-sem-taka-thatt-i-startup-supernova/

Bókaðu kynningu