Til baka í fréttir

Aldan á stórri frumkvöðlaráðstefnu í Kaupmannahöfn

Aldan á stórri frumkvöðlaráðstefnu í Kaupmannahöfn

Öldu-teymið fór ásamt 7 öðrum teymum úr viðskiptahraðlinum Startup SuperNova og fjölmörgum öðrum Íslendingum úr nýsköpunargeiranum á TechBBQ ráðstefnuna í Kaupmannahöfn í síðustu viku.

Þar fengum við okkar 90 sekúndur af frægð til að kynna Öldu öryggisstjórnunarkerfið okkar, kynntumst mikið af skemmtilegu og áhugaverðu fólki og hlustuðum á spennandi og fræðandi fyrirlestra.

Þetta er allt hluti af því að undirbúa okkur í Öldu-teyminu fyrir sókn á erlenda markaði og erum við ótrúlega þakklát Klak og Startup SuperNova fyrir tækifærið að fá að taka þátt í þessu frábæra starfi í frumkvöðlaheiminum.

Bókaðu kynningu