Til baka í fréttir

Alda notuð af 65% af stærstu útgerðum landsins

Alda notuð af 65% af stærstu útgerðum landsins

Nýlega birtu Fiskifréttir (Viðskiptablaðið) áhugaverða grein um Ölduna þar sem m.a. kemur fram kemur að 65% af stærstu útgerðum landsins hafa nú þegar tekið öryggisstjórnunarkerfið í notkun. Einnig að viðræður séu hafnar við erlendar útgerðir, meðal annars í Færeyjum og Bretlandi, í tengslum við frekari útbreiðslu Öldunnar.

Tvö þúsund sjómenn nota Ölduna nú þegar til að halda utan um öryggismál um borð, og fyrirtækið stefnir á verulegan vöxt á árinu. Auk þess er þróunarsamstarf í gangi við ýmsa aðila í greininni og tengdum greinum til að gera lausnina enn betri og sveigjanlegri fyrir ólíkar skipategundir.

Fulla ferð áfram með Öldunni - árið 2026 verður ár vaxtar hjá okkur!

https://fiskifrettir.vb.is/65-staerstu-utgerda-nota-alda-oryggi/

Bókaðu kynningu