Til baka í fréttir

Arnarlax og Alda stíga Ölduna

Arnarlax og Alda stíga Ölduna

Í vor hófst þróunarsamstarf við Arnarlax um að um að aðlaga og þróa Öldu öryggiskerfið sérstaklega að þörfum sjóeldisfyrirtækja. Í verkefninu felst aðlögun Öldunnar að aðstæðum sjóeldis ásamt tengingum við öryggismál starfsmanna, björgunaræfinga og öryggisbúnað báta Arnarlax. Vinnan er þegar hafin og eru bátar Arnarlax byrjaðir að nýta sér Ölduna til að auka öryggisvitund starfsmanna og efla öryggismálin um borð.

Markmiðið er að styrkja öryggi starfsfólks og rekstrar með skýrari yfirsýn, rafrænni skráningu æfinga og úttekta og markvissri eftirfylgni á mögulegum áhættuþáttum og verklagi um borð báta Arnarlax.

Við í Öldunni siglum spennt inn í haustið í áframhaldandi þróunarsamstarfi með Arnarlaxi.

Bókaðu kynningu