Gísli stjórnar málstofu á Sjávarútvegsráðstefnunni

Sjávarútvegsráðstefnan 2025 í fer nú fram í Hörpunni og í gær var Gísli Níls, framkvæmdastjóri Öldu Öryggis, málstofustjóri eins viðburðarins þar. Málstofan hafði yfirskriftina "Sögur af nýsköpun" og fengu gestir að heyra fjögur áhugaverð erindi frá aðilum sem tengjast nýsköpunarheiminum í sjávarútvegi á Íslandi - þ.e. Rannís, GreenFish, Kerecis og Sjávarklasanum.
Gísli Níls hélt utan um málstofuna og stjórnaði eftir erindin panel-umræðu allra framsögumanna. Sköpuðust þar líflegar og skemmtilegar umræður um áskoranir og tækifæri á sviði nýsköpunar í sjávarútvegi.
Hér er að finna skemmtilegt myndband frá fyrra degi þessarar metnaðarfullu ráðstefnu.
