Hoffell og Ljósafell héldu eldvarnaæfingu með slökkviliðinu

Í byrjun október héldu áhafnir Hoffells og Ljósafells hjá Loðnuvinnslunni, eldvarnaæfingu með slökkviliði Fjarðabyggðar. Farið var yfir reykköfunarbúnað og haldin reykköfunaræfing með áhöfnum skipanna. Meðal annars var verkefnið að fara niður í vélarými og loka fyrir kúluloka og fara upp aftur. Mikil umræða skapaðist um eldvarnir um borð meðal áhafna og greind ýmis tækifæri sem sneru að fjarskiptabúnaði og slökkvigöllum til að skoða áfram eftir eldvarnaæfinguna. En nú erum bæði skipin byrjuð að nota Ölduna og fara vel að stað í að nýta sér hana til samræma þjálfun um borð í skipunum. Við í Öldunni hvetjum áhafnirnar til að halda áfram að stíga Ölduna í öryggismálum sjómanna!





