Til baka í fréttir

Öldu-teymið lýkur mentoraþjálfun Startup SuperNova

Öldu-teymið lýkur mentoraþjálfun Startup SuperNova

Í tengslum við viðskiptahraðalinn Startup SuperNova fékk Öldu-teymið aðgang að þremur aðilum frá mentoraþjónustu Klak – Icelandic Startups. Við í Öldunni vorum svo heppin að fá úthlutað frábæru fólki sem við lærðum afar mikið af.

Snorri Pétur Eggertsson kom með mikla sérfræðiþekkingu á viðskiptamódelum og fjármögnunarleiðum, Gunnar Þorvaldsson er reynslubolti á sviði strategískrar uppbyggingar sterkra vörumerkja og Eva Ýr Gunnlaugsdóttir veitti okkur afar gagnlega innsýn á starfsmannamálin og uppbyggingu sterkra teyma.

Okkar mentoraþjálfun er nú lokið og þökkum við mentorunum okkar innilega fyrir ómetanlega ráðgjöf og leiðsögn varðandi framtíðar uppbyggingu Öldunnar bæði á Íslandi og í erlendri útrás.

Bókaðu kynningu