Reglulegar æfingar skiptu sköpum um borð í Barða

Í síðustu viku kom upp eldur í vélarrúmi skips Síldarvinnslunnar Barða NK 120 við Færeyjar. Atvikið vakti mikla athygli enda um alvarlegt neyðartilvik að ræða þar sem skjót viðbrögð og gott skipulag skiptu sköpum í því að ekki fór verr.
Síldarvinnslan hefur um árabil lagt mikla áherslu á öryggismál í sinni starfsemi og notar Öldu öryggisstjórnunarkerfið í skipaflota sínum, þar á meðal um borð í Barða. Forsvarsmenn Síldarvinnslunnar hafa sagt að viðbrögð áhafnarinnar hafi komið í veg fyrir að illa færi, og Theodór Elvar Haraldsson skipstjóri á Barða sagði að ljóst væri að þjálfun áhafnarinnar í öryggismálum skipti sköpum þegar á reyndi.
Gísli Níls Einarsson framkvæmdastjóri Öldu Öryggis segir að áhöfn Barða hafi verið mjög virkir að halda æfingar og hafi einmitt nýlega æft viðbrögð við sambærilegum aðstæðum og komu upp í skipinu. „Ég er virkilega stoltur af þeim Barðamönnum og hvernig þeir brugðust við þegar eldurinn kom upp, Þarna var það þekking þeirra og þjálfun sem skipti sköpum,” sagði Gísli.
Reglulegar eldvarnar- og björgunaræfingar eru meðal mikilvægustu verkfæra sem útgerðir hafa til að tryggja öryggi áhafna sinna. Aðstæður þegar eldur kemur upp um borð í skipi eru aldrei auðveldar, en með markvissum æfingum og skýrum verkferlum verða viðbrögð markvissari og öruggari þegar hver sekúnda skiptir máli. Þegar neyðarástand skapast er það þekkingin og reynslan sem byggist upp í gegnum slíkar æfingar sem getur skipt sköpum.
Atvikið um borð í Barða minnir okkur á að neyðarástand getur skapast án fyrirvara. Því er mikilvægt fyrir sjómenn að halda áfram að leggja áherslu á öflugar æfingar, reglulegar úttektir og virka öryggisstjórnun. Þannig er best hægt að tryggja öryggi til sjós svo allir komi heilir heim.
https://fiskifrettir.vb.is/eldsprenging-vard-i-velarrumi-barda/
